Bestu kveðjur, Atli Dagur og Co.
Saturday, May 30, 2009
Sunday, March 1, 2009
Saturday, February 7, 2009
Thursday, December 25, 2008
Tuesday, September 30, 2008
Friday, June 20, 2008
Bello bambino!!!

Þá er Atli Dagur kominn heim úr sumarleyfinu. Búinn að ferðast með foreldrum sínum um allt Toscana hérað með viðkomu í Kaupmannahöfn. Foreldrarnir vissu ekki við hverju ætti að búast í fyrstu flugferðinni en Atli Dagur lét sér fátt um finnast og lagði sig bara öðrum farþegum til mikils léttis. Væntanleg sól og hiti hafði einnig valdið foreldrunum áhyggjum en það reynist ástæðulaust þar sem veðrið var hið heppilegasta fyrir lítinn snáða og flíspeysan var höfð uppi við flesta daga. Glókollurinn vakti mikla athygli hjá Ítölunum sem kölluðu upp yfir sig ,,bello bambino" þegar þeir sáu ljósu lokkana. Þeir eru barnelskir með eindæmum og börnin í ferðinni voru alls staðar velkomin. Setti hópurinn hvern veitingastaðinn á fætur öðrum á annan endann með fjórum litfríðum prökkurum sem sumir hverjir voru farnir að tala ítölsku og dansa ballett fyrir viðstadda. Atli hafði mjög gaman af að fylgjast með Nínu ballerínu, Eyjólfi riddara/sjóræningja og Gesti grallara og mun búa að þeirri reynslu. Hann hitti einnig vin sinn Dag Sölva í Siena og Heiðrún Sunna kíkti í heimsókn.
Að lokinni skemmtilegri dvöl í Toscana var haldið til Kaupmannahafnar þar sem Atli heimsótti ættingja sína, afa og ömmu og Jón og Bryndísi. Foreldrarnir gátu þá loksins sofið út. Atli hafði samviskusamlega skipt yfir á ítalskan tíma án þess að foreldrarnir gerðu slíkt hið sama og tók daginn fullsnemma en þá kom amma Sigrún þeim til bjargar.
Nú er Atli Dagur kominn heim í sólina og búinn að koma sér á íslenskan tíma eftir einn erfiðan morgun þar sem farið var á fætur kl. 04. Tími til kominn að fara að nota sólvörnina sem búin er að vera í ferðatöskunni síðastliðnar vikur!
Sunday, May 25, 2008
Sumarmús
Atli Dagur er búinn að hafa nóg fyrir stafni síðustu vikur. Hann skellti á sundnámskeið og fannst það svakalega gaman. Tvisvar í viku mætir hann í sund ásamt foreldrunum. Þar kafar hann og dýfir sér af bakkanum eins og hann hafi aldrei gert neitt annað.Nú er mánuður síðan hann byrjaði að borða og gekk það fremur hægt í byrjun en áhuginn er að aukast eftir að ávextir og grænmeti voru kynnt til sögunnar. Hann raðar fæðutegundum eftir vinsældum í eftirfarandi röð: 1. Gulrætur 2. Epli 3. Perur. Síðan koma aðrar tegundir af mauki og grautur rekur lestina, honum finnst grautur ekkert spes. Lýsi bragðast hins vegar mjög vel! Engar tennur eru komnar og virðast ekki á leiðinni...
Hann tekur lífinu með ró og sefur áfram allar nætur, foreldrum sínum til mikillar ánægju. Hins vegar finnst honum ágætt að taka daginn snemma og foreldrunum þykir stundum nóg um þegar hann vaknar eldsprækur klukkan 6 að morgni enda góðu vön.
Atli Dagur er söngelskur og þykir mjög skemmtilegt þegar pabbi tekur fram gítarinn og spilar nokkur lög. Efst á vinsældalistanum er Dvel ég í draumahöll... úr Dýrunum í Hálsaskógi. Þá brosir hann út að eyrum. Annað sem kallar fram bros er að sjá fólk frussa og hann skellir jafnvel upp úr ef vel tekst til. Hann æfir sig mikið í því sjálfur.
Á dögunum fór hann í myndatöku fyrir vegabréfið sitt og þá var hann einmitt mjög upptekinn af því að frussa og ekki náðist mynd öðru vísi. Eftir dálítið margar tilraunir var ákveðið að Atli Dagur yrði þá bara að vera frussandi á myndinni í vegabréfinu. Þetta vegabréf mun hann nota til 5 ára aldurs.
Nú eru bara nokkrir dagar þar til Atli Dagur skellir sér til Ítalíu með viðkomu í Kaupmannahöfn. Hann tók smá forskot á sæluna í dag þegar hann fékk að sitja úti í grasi í fyrsta skipti og smellti mamma nokkrum myndum af honum við það tækifæri.
Subscribe to:
Posts (Atom)
